Fyrsti dagurinn liðinn og ég er í skýjunum. Hér var sól og hiti þegar ég kom og ég eyddi tveimur tímum á torginu, á litlu veitingahúsi þar sem ég fékk mér spænska ommelettu og brauð. Sat úti og naut þess að vera komin á staðinn. Kynntist tveimur skotum sem hafa búið hér í áraraðir og þeir sögðu mér að það væri óvenjulega heitt um þessar mundir miðað við árstíma. Kom í ljós að þau búa í götunni fyrir neðan húsið hjá mér og þau sjá upp á svalirnar mínar frá sínu húsi. Allt mjög smátt í sniðum hér og þrátt fyrir endalausa króka og kima er auðvelt að rata. Þorpið er yndislegt, smátt, þröngt og vinalegt. Fyrst og fremst er það þó bratt. Komst að því keyptu á fyrsta degi að það þýðir ekkert að leika skvísu hér á hælaskóm (sem eru nánast einu skórnir sem ég tók með mér, - vitringurinn!). það myndi kannske ganga upp í móti en alls ekki niður. Sofnaði út frá hundgá og rigningarhljóði klukkan átta, búin á því.
Í dag, mánudag fór ég svo á bændamarkaðinn hér og keypti mér möndlur, ólífur, kirsuber og jarðaber ásamt pylsu og osti hjá tannlausum síbrosandi gamlingja, sem virtist jafnglaður og ég með viðskiptin. Hef ekki mikla lyst á fullri máltíð enn sem komið er. Fór svo í myndaleiðangur hér í nánasta umhverfi hússins. Það er hætt að rigna í bili og ég sat í sólinni úti á svölum hluta úr deginum en er nú byrjuð að vinna í gögnunum mínum. Skrifborðið mitt er undir glugganum sem snýr út á götu og ég fæ heimsókn á gluggakistuna af kolsvörtum ketti nokkrum sinnum yfir daginn. Þegar hann kemur opna ég gluggann og gef honum kattamat í dall og vatn út á sylluna. Voða notalegt. Hef ákveðið að kalla hann Bono. elska þetta einfalda líf - enn sem komið er allavega. Hér eru nokkrar myndir af götunni sem ég bý við, teknar frá útidyrunum mínum.
Flokkur: Bloggar | 16.1.2012 | 17:25 (breytt kl. 17:25) | Facebook
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til lukku Stína mín og hafðu það sem allra allra best. Ekki laust við að ég öfundi þig pínulítið ;)Njóttu lífsins í ræmur.
Hrafnhildur Inga Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2012 kl. 18:32
Elsku Stína mín, njóttu þess að vera á þessum dásamlega stað. Ég öfunda þig endalaust! Hlakka til að fylgjast með þér á þessari síðu.
Kveðja Björg
ps. Til lukku með Gretu, ekkert smá vel gert hjá henni
Björg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2012 kl. 20:31
Elsku systir.
Frábært að vita að þú ert að njóta þín. Var farin að hafa smá áhyggjur af því að heyra ekkert af þér á Facebook eða á Skypinu. Njóttu nú lífsins og frelsisins alveg í ræmur - ég skal fylgjast með liðinu í Bjargartanganum og bjóða Stebba í mat þegar ég kem heim. Brauð og með því fyrir stelpurnar á laugardagsmorgni - þ.e.a.s. óbreytt ástand
P.S. Gréta fór áfram í Euro og Kría var valin besti öldungur sýningar ásamt því að fá heiðursverðlaun á sýningu Íslenska fjárhundsins - semsagt tvöfaldur sigur á laugardaginn enda var ég með Eurovision partý hér á laugardagskvöldið.
Til hamingju með Grétu elsku sys.
Knús frá Lille Bror !
Teddi Lille Bror (IP-tala skráð) 16.1.2012 kl. 21:24
Sæl Elsku Stína
Þetta er eins og spennandi bíómynd....hlakka til að fylgjast með. Tek undir með Björgu....smá öfund. Ég er að skrifa og er komin í 80% vinnu í þrjá mánuði. Erfitt að fara að lesa þegar maður kemur heim þreyttur úr vinnunni...En njóttu þess að vera og slaka og vinna.
Til hamingju með skvísuna þína:D
Svandís
Svandís Sturludóttir (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 08:23
Gaman að lesa bloggið þitt Stína mín, vona að þú njótir verunnar í botn og komir miklu í verk ;) Hef reyndar meiri áhyggjur af því, að þú ofgerir þér en hitt...Til hamingju með Grétu Salome, hún stóð sig auðvitað með prýði enda dóttir þín ;) Fékk mitt atkvæði, átti það skilið og svo auðvitað af því hún er dóttir ykkar og svo var vinur minn Gísli Magnason að syngja með henni..Knús, hlakka til að lesa meira og vona að þú hafir það dásamlegt,
þín vinkona Halla
Guðrún Halla Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 17:16
Hæ elskurnar. FRÁBÆRT að fá þessar línur. Ætla að vera dugleg að setja hér inn hversdagslegar fréttir og myndir. Set myndirnar líka á Facebook. Heimþráin gerði aðeins vart við sig í kvöld en líður hjá. Er komin í fínan gír að vinna og geri það helst síðdegis og á kvöldin. Dagana nota ég til að átta mig á umhverfinu ,sleikja sólina og hugsa um verkefnin mín. segi það satt- þetta ætti hver einasta kona að prófa - og auðvitað karl líka
Kristín Lilliendahl (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 20:47
Elsku Stina min
Frábært að fá af þér fréttir. Þetta litur allt svo ótrúlega vel út. Þér á örugglega eftir að líða vel. Hér slyddar og hríðar en allt hefur sinn sjarma. Kíktu á skiðaboðin þín a facebook. Þar eru upplýsingar um ferðplön okkar mæðgna. Hlakka mikið til!!!!! En daman veit ekkert ennþá.
xxx knús og njóttu vel mín kæra.
Sigga
Sigríður Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 14:37
Mikið samgleðst ég! Gaman að lesa svona dásamlegar hversdagslegar fréttir. Einhverra hluta vegna hugsa ég um myndina Chocolat með Juliette Binoche þegar ég sé þig fyrir mér þarna í íbúðinni... Kv. Karen
Karen (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 15:13
Til hamingju Stína mín með nýja tilveru sem ég vona að þú njótir og nýtir sem best. Einnig til hamingju með Grétu og gangi þér vel í öllu þínu.
Ástarkveðja, Viggó mágur.
Viggó Bragason (IP-tala skráð) 20.1.2012 kl. 01:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.