Radíusinn víkkaður út í dag.

Jæja. Ég ákvað að stækka svolítið radíusinn í dag. Fór með strætó niður á strönd fyrir hádegi og eyddi þar nokkrum klukkutímum. Svolítið annað uppi á teningnum þar! Fór fyrst í supermarkaðinn að kaupa inn sitt af hverju sem ekki fæst í þorpinu. Gekk svo niður á strandgöngugötuna og það var satt að segja ekki leiðinlegt! Þar eru engar búðir (sem betur fer). Bara veitingarstaðir. Þegar ég var að labba þangað niðureftir heyrði ég í sjónum áður en ég sá hann. Og það var yndisleg tilfinning. Gatan er alveg í sjávarmálinu og ströndin eins og heima; öskugrá og svolítið grýtt. Fólkið hér er mest fullorðnir Norður-Evrópubúar sem búa hér hluta úr ári. Svo sá ég að það er talsvert af lungnasjúklingum hér sem eru með súrefniskúta, sennilega hér til  heilsubótar, en hér í Torrox er talið vera besta loftslag í Evrópu. Fékk mér að borða hádegismat á ströndinni og naut þess að teygja álkuna upp á móti sólinni. Á leiðinni heim í strætó lenti ég á tali við fullorðinn Englending sem gaf mér strætóáætlunina sína og sagði mér ýmislegt gagnlegt um svæðið. Hann hefur búið hér hluta úr ári í tíu ár. hann segir mér að hér sé mikið af Norðmönnum, Englendingum og Svíum búandi í þorpinu. Veit ekki afhverju, en hann fór að flissa þegar ég sagði honum að ég væri Íslendingur. Var næstum búin að segja honum að ég væri ekki sérstaklega ábyrgð fyrir Icesave-klúðrinu.

Læt hér fylgja hvernig ég gerði mig að algeru fífli á veitingastaðnum. Þjónninn kemur og ég segi: "Can I have the menu please"? "Yes of course" segir hann. Svo horfir hann svolitla stund á mig og segir: English, Norwegian or Swedish"? Og ég snillingurinn segi: "No Icelandic" og brosi mínu blíðasta. Óóó, svo fatta ég. Hann er að spyrja mig á hvaða tungumáli ég vilji fá matseðilinn. "Oh, you mean the menu"? segi ég og skammast mín. Jæja, hann allavega reynir að stilla sig en skellir svo upp úr. - Og ég líka. "Si senora" segir hann svo og hraðar sér inn á barinn aftur, sennilega til að segja hinum frá þessum íslenska asna sem sleikir sólina þarna úti og heldur að mikilvægasta fólkið í heiminum séu Íslendingar!  

Nóg um það. Hér uppi á svölunum mínum sit ég svo og reyni að fresta því að byrja að skrifa. Hlusta á sauðabjöllurnar ofan úr hæðunum, hanagalið og sífellt hundagjammið ásamt samtali spánverjanna sem eru að steypa í holurnar sem hafa myndast í götunni hérna. Langt fyrir neðan mig, prjónar gömul kona úti við húsið sitt og senoran í næsta húsi er að ditta að blómunum sínum. Kominn tími til að bretta upp ermar og líta í gögnin sín.   Ola.  001002006008014


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Stína mín :)  Svakalega er gaman að lesa bloggið þitt.  Þetta hljómar eins og eitt risastórt ævintýri.  Þú ert greinilega líka með húmorinn á réttum stað ;)

Margrét S. Björnsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2012 kl. 15:57

2 identicon

Gaman að lesa. Ég er forvitin. Hvað eru að skrifa?

Margrét Ríkarðsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2012 kl. 16:10

3 identicon

Mikið er skemmtilegt að fylgjast með þér og kisa. Þú gerir þér grein fyrir því Stína mín að nú er bloggið þitt orðið fastur liður í morgun-ritualinu hjá mér ásamt hafragrautnum og visir.is þannig að það er eins gott að halda á spöðunum ;)Gangi þér vel með hin skrifin þín líka.

Hrafnhildur Inga Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2012 kl. 17:23

4 Smámynd: Kristín Lilliendahl

Magga mín. Ég er bara að skrifa rannsóknargrein sem setið hefur á hakanum og sitthvað fleira tengt starfinu. Hrabba mín, heiður af því að tilheyra morgunrituali þínu. ekki amalegt

Kristín Lilliendahl, 19.1.2012 kl. 17:28

5 identicon

Gaman að fylgjast með þér Stína mín, ég er agjörlega græn af öfund þegar ég les bloggið þitt, mér sýnist að ég þurfi endilega að finna mér rannsóknarritgerð til að skrifa ;)

Ásgerður Þórarinsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2012 kl. 18:01

6 identicon

Mikið hljómar þetta allt saman spennandi. Gaman að fylgjast með. Ekki laust við smá öfund hér....

P.s.Átti "ola" ekki annars að vera "adiós"?(ekki langt að sækja að vera hrekkjusvín).

Regína Greta Pálsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2012 kl. 23:52

7 identicon

Gaman að lesa bloggið hjár þér! Hljómar ekkert smá vel... búinn að bæta þér í favorites og mun kíkja inn við og við :) 

Runar Rafn Aegisson (IP-tala skráð) 20.1.2012 kl. 03:12

8 Smámynd: Kristín Lilliendahl

 Segi Ola út um allt og hvenær sem er því ég kann ekkert annað  Fæ fullt af fallegum brosum fyrir bragðið. Segi það satt að maður hefur gott af því að reyna á sjálfan sig í nýju umhverfi og læra að taka sjálfan sig ekki of hátíðlega. En það er nú svo sem bara sparihliðin uppi ennþá. Búin að vera hér í tæpa viku. Það er nú ekki mesta fjörið hérna í veröldinni. En þetta hentar mér mjög vel þetta rólega þorpslíf. Sé þó meira af því enn sem komið er en að taka þátt í því. Gott og friðsælt að vera áhorfandi svolitla stund af lífinu í kringum sig. Held að maður sjái meira þannig! "OLA"

Kristín Lilliendahl, 20.1.2012 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband