Hland fyrir hjartað

Kattargarmurinn hann Bono heldur betur að færa sig upp á skaftið. Kemur nú þrjár ferðir á dag upp á gluggasylluna og heimtar mat með því að gera sig ofursætan, klóra framloppunum í gluggan og væla. Er þar að auki farin að taka vini sína með. Veit ekki alveg hvar þetta endar. Í kvöld hrökk ég svo illilega við þar sem ég sat við tölvuna mína þegar barið var fast á dyrnar , hrópað og kallað. Sem betur fer get ég opnað efri helminginn af útidyrahurðinni til að gá hver er. Þarna stóð fullorðinn karl og bauð mér fullan plastpoka af sítrónum til sölu fyrir eina evru. Fyrsta sem ég  hugsaði var; já, já. Einmitt það sem mig vantar - eða þannig. Keypti þær samt af því ég gat ekki sagt nei. Nú á ég risaskál troðfulla af sítrónum - heppna ég GetLost 

 

001


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Love you elsku sys ! Þú ert algjör hetja ! Gott fyrir sálina að kaupa sítrónurnar af gamla manninum  Ég á poka af gömlum döðlum í ískápnum sem þú getur fengið fyrir 1/2 evru ef þú hefur áhuga

Teddi Lille Bror (IP-tala skráð) 21.1.2012 kl. 21:29

2 identicon

Sítrónur agalega góðar í drykk í morgunsárið. Hef lent í svipuðum aðstæðum á Ítalíu. Það er að segja við vinkonurnar sátum uppi með nokkur kg af sítrónum sem vinir okkar vildu endilega leysa okkur út með. Svo það voru pressaðar sítrónur alla morgna með örlitlu heitu vatni. Svo gott fyrir meltinguna Stína mín.

Sigríður Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2012 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband