Góður dagur

 

Nokkuð kaldara í dag en undafarna daga. Samt sól og hiti. (Aumingja þið heima!). Dagurinn í dag byrjaði klukkan átta hjá mér. Þá vakna ég yfirleitt. Stundum ligg ég í rúminu samt í hálftíma á meðan ég sæki í mig kjark til að fara fram úr í kuldann. Það er þó eitt sem rekur mig gjarnan framúr svona snemma. Á þessum tíma morguns eru ljósaskipti hér. Það er yndislegt að klæða sig í hlýja peysu utan yfir flónnelsnáttbuxurnar sínar og ganga út á svalir sem eru út af svefnherberginu mínu. Á þessum tíma er þorpið fallegast. Upplýst með rauðgulum ljósum og húsin snjóhvít. Fuglinn er kominn á fullt í dalnum þó það sé ekki ennþá albjart og þorpið sjálft vaknar ekki almennilega fyrr en milli hálfníu og níu. Haninn sem býr hér í hæðunum handan við gilið byrjar að gala venjulega um átta leytið. Þessi stund er bæði kyrrlát og dásamleg og ég get ekki stillt mig um að þakka Guði fyrir að hafa fengið að upplifa þessa daga hér. Sennilega myndi þó ekki mörgum þykja mikið til koma. Hér er ekkert fjör!

Svo fer ég niður í eldhús, útbý mér morgunmat sem venjulega samanstendur af jógúrt og appelsínu, hita mér kaffi og hita á mér hendurnar á kaffibollanum sem ég tek með mér aftur upp á svalirnar þar sem ég sit í svolitla stund undir fyrstu morgungeislunum. Hér er svo mikill munur á hitastiginu á næturna og daginn að plastborðið á svölunum grætur á morgnana og sætið í stólnum er rakt. Í morgun var nágrannakona mín að hengja upp þvottinn sinn og söng hástöfum á meðan svo heryðrist um hálft þorpið. Og ég er að meina hástöfum. Yndislegt! (mynd af henni hér fyrir neðan).  Þegar klukkan er hálftíu sest ég niður við tölvuna í einn og hálfan tíma en þá fer ég út í sólina á efri svölunum (þriðju hæð) og er þar til kl. tvö eða hér um bil. Legg þá af stað niður á torg, þar sem alltaf er fullt af fólki og fæ mér að borða og sit þar í sólinni til kl. þrjú og stundum hálf fjögur. Þá rölti ég krókaleiðir heim, tek myndir og er yfirleitt sest við vinnu um fjögur. Í dag hitti ég skotana aftur og þau hóta því að banka upp á hjá mer fljótlega og bjóða mér í Tapas. Ekki leiðinlegt! Klukkan sjö er orðið dimmt. Snarla yfirleitt  brauð, ost, tómata, ólívur og spænska pylsu á kvöldin með rauðvíni, horfi á íslenskra fréttir með góðum kaffibolla og held svo áfram ýmist hér niðri eða uppi í rúmi. Hef ekki farið út á kvöldin hér fram að þessu. Lít á síðdegin og kvöldin  sem vinnutíma, en fer örugglega einhverntíma eitthvað. Geri lítin dagamun hérna og auðvelt að gleyma hvaða vikudagur er. Mun þó ekki gleyma næsta laugardegi :). Er yfirleitt sofnuð um ellefu þegar ég er búin að spjalla við elskurnar mínar heima og heilsa upp á boxerinn minn á Skypinu. Yndislegt líf! Set hér nokkrar myndir af því sem fyrir augu ber á ferðum mínum um þorpið. Adios Kissing (búin að læra það!)

004002001002004

 

 

 

 

006007020013014016

 

 

 

 

017018021022001

 

 

 

 

005006004009013

 

 

 

 

 014


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband