Jæja, kominn laugardagur. Þrátt fyrir vatnsflauminn hér í úrhellinu í gærkveldi er allt orðið þurrt í morgun. Nema skórnir mínir. Sólin farin að skína aftur að mestu. Er að bíða eftir endurgjöf frá minni elsku vinkonu Vilborgu á grein sem við erum að skrifa saman, svo ég er ætla að taka mér frí í dag. Er líka farið að lengja eftir bókunum sem Sebbi minn setti í póst fyrir nokkrum dögum síðan og ég þarf á að halda við vinnuna mína. Voru of þungar til að taka með í farangurinn hingað út. En eins og hér myndi líklega vera sagt: "Calma, calma". Hér virðist fáum liggja á. Strætó þykist ætla að koma á ákveðnum tíma en kemur bara þegar honum sýnist. Bílstjórar stoppa hér á aðalgötunni til að spjalla við gangandi vegfarendur og þeir sem á eftir eru, bíða bara. Fólk fær sér að borða eða drekka á torginu í hádeginu og allt eins víst að það sé þar ennþá klukkan fjögur. Þá getur maður alveg þurft að bíða í búðunum á meðan afgreðislufólkið spjallar við viðskiptavini um heima og geima. Hrædd um að F-merkið væri löngu komið á loft heima. Og eruð þið að grínast hvað ég hef gott af einmitt þessu! Ég hef aldrei kunnað þá list að bíða. Þolinmæði ekki mín sterkasta hlið. En hér er bara ekki um neitt annað að ræða.
Fór á markaðinn í morgun að kaupa jarðaber, olívur, möndlur og appelsínur sem hvergi eru betri en á Spáni. Síðan á torgið í hádeginu og fékk mér Tapas og drakk í mig sólina. Það er sagt að um 65% af tjáningu fólks sé óyrt. Þar sem ég tala ekki tungumálið hef ég notað tímann á torginu og æft mig í þeirri list að horfa á það sem er að gerast í kringum mig og lesa í hátterni fólks þegar ég sit þar. Það er eitthvað ótrúlega notalegt og gaman að sitja þar við þá iðju. Auk þess passa ég mig á að taka alltaf myndavélina með mér. Þarna koma allir saman. Alltaf fullt af fólki, bæði innfæddum og öðrum íbúum. Set hér inn nokkrar myndir af ferð minni í dag. Á leiðinni heim efndi ég loforð og kom við á litlu kaffihúsi í einni hliðargötunni hér sem bresk nágrannahjón mín reka. Þar fékk ég besta kaffið hingað til í pínulitlum bakgarði sem snýr beint upp í hæðirnar. Rólegt og notalegt hjá notalegu fólki. Ætla að vera löt í dag og eiga svo notalegt kvöld og horfa á eldri skottuna mína syngja í sjónvarpinu og yngri skottuna mína sem er yfir-reddari og stílisti systur sinnar í þessu júró-amstri. Lífið í brjóstinu á mér þessar skottur og þakkarefni mitt hvern dag
Flokkur: Bloggar | 28.1.2012 | 14:09 (breytt kl. 14:24) | Facebook
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku Stína mín.
Innilega til hamingju með hana Grétu þína og ekki vantar stílinn hjá henni Sunnu. Ekkert smá spennandi. Hér verður sko Eurvison partý 11. feb. Ber uppá afmælisdaginn hennar Laufeyjar. Sennilega fullt hús af 12 -13 ára dömum.
Nú á daman nýtt markmið þ.e að spila á fiðlu í Eruovision.
Frábærar myndir. Hlakka svo til.
Kv. Sigga
Sigríður Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2012 kl. 14:55
Gaman að heyra að þú sért að hafa það allt of gott! Tók mig góðan tíma að venjast hversu hægt og afslappað lífið er þarna... vona að þetta pirri þig eitthvað minna en það gerði mig ;)
Runar Rafn Aegisson (IP-tala skráð) 31.1.2012 kl. 18:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.