ennþá verra veður.

Hér hefur verið hreinlega óveður í tvo sólarhringa. Ég get ekki ímyndað mér að mörgum hér í þorpinu hafi orðið svefnsamt síðustu tvær nætur. Hávaðrok sem þeytti þakinu af skuggasvölunum hjá mér, hvolfdi stórum þungum blómapotti og setti öll útihúsgögn á hliðina. Hér nötraði allt og skalf hrikti í öllum gluggum og hurðum með tilheyrandi hávaða og látum. Það er sérkennilega hljóðbært hér í þessum litlu þröngu götum og stundum erfitt að átta sig á hvaðan hljóðin berast. Ég fór því tvær ferðir upp úr rúminu í nótt því mér heyrðist útihurðin hafa fokið upp. Reyndist vera hleri fyrir vatnsinntaki í næsta húsi sem skall opinn. Kom fram í fjölmiðlum að hér hafi ekki verið jafn kalt í 60 ár eins og þessa daga. Tvær gráður og hávaðarok á daginn og óveður á næturna. Þar með hef ég verið undir feldi í orðsins fyllstu merkingu í 48 tíma og reynt að halda á mér almennilegum hita. Fingurnir heldur stífir á lyklaborðinu. Spáir hlýnandi sem betur fer. Ótrúlegt að hugsa þrjá daga til baka þar sem ég sat í flæðarmálinu í bongóblíðu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frekar ónotalegt Stína mín en gleymist örugglega fljótt þegar sólin fer að verma og vindinn að lægja :)  Gæti samt trúað tímanum til að líða frekar hægt við þessar aðstæður.

Verður vonandi komin sól og hiti þegar Greta vinnur á laugardaginn ;)

Margrét S. Björnsdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2012 kl. 15:04

2 identicon

fínasta slóð - æfa sig á síðkvöldum undir teppi - og koma svo kráareigandanum og nágrönnunum á óvart ;)

http://www.queondaspanish.com/lessons

Hrafnhildur Inga Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2012 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband