rólegir dagar

Undanfarnir dagar hafa verið rólegir. Hér hefur verið kalt en gott inn á milli. Ég hef setið við skriftir ásamt því að hitta norska kennara sem eru reyndar farnir heim núna. Skrugguskemmtilegar kellur sem vilja að ég sláist í hópinn með þeim og gangi huta af Jakobsstígnum í haust. Kemst þó sennilega ekki. Víkkaði enn meira sjóndeildarhringinn og fór á dögunum til Nerja til að kaupa afmælisgjöf handa Sunnu, sem er afar heillandi bær. Strandvíkin þar er mjög falleg og bærinn heimsborgaralegur en um leið vinalegur. Set myndir hér með af Nerja. Þegar ég sat þar á kaffihúsi og var að bíða eftir strætó settist fullorðinn maður rétt hjá mér og hvíslaði yfir til mín; "Do you speak english"? Ég kinkaði kolli og þá sagði hann "Well, get your ass over here, I have to ask you something". Kom á daginn að hann var í bænum í fyrsta sinn með vini sínum og þeir voru kanadískir kennarar á eftirlaunum og leita sér að sumarhúsi í Andaluciu. Sá kom fljótlega og við sátum þrjú og skemmtum okkur á spjalli í hálftíma eða þar til strætóinn minn kom. Skemmtilegt að hitta svona vænt fólk svona óvænt. Við skiptumst á e-mail og létum taka af okkur mynd saman sem ég á eftir að fá senda.  

Setti mig í samband við einn vinnufélaga minn af menntavísindasviði sem býr í Granada sem stendur og við munum væntanlega hittast eitthvað þegar ég kem til Granada næst. Síðasta kvöldið sem norsku kellurnar voru hér fórum við út að borða saman á kínverskan veitingastað hérna niðri við strönd sem var mjög skemmtilegt kvöld. Allt saman pensjonistar sem eru að ferðast saman út um allan heim. Set hér mynd af því líka.

Í dag og í gær hefur svo verið karnival hér í bænum sem ég hlakkaði til að sjá en það var ekki merkilegt. Og aldrei áður hef ég hlustað á kór þar sem ekki nokkur maður heldur lagi. Í dag var svo furðufatadagur fyrir börnin sem var mjög skemmtilegt að fylgjast með.

Hér varð slys á torginu fyrir fáeinum dögum en þá keyrði sendiferðabíll inn í þvöguna sem sat á útikaffihúsinu sem ég sit venjulega á. hann keyrði niður fjóra Breta og hundgrey sem fótbrotnaði. Tveir Bretanna slösuðust nokkuð mikið en hinir tveir sluppu betur. Fegin að ég var ekki þar.

Co og Eddie sem búa hér fyrir neðan mig buðu mér að slást í för með þeim til Malaga einhverntíma í næstu viku sem ég ætla að þiggja.

 Aðal ströndin í NerjaNerja fyrir ofan víkinainngangurinn að kínverskanorskir, sænskir og íslendingur

 

 

 

einn vagnin á götunni í dagsamkomutjald reist á toginu fyrir karnivaliðBörnin í búningumKarnivalið í undirbúningi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Stína mín

Það er gaman að fylgjast með og sjá myndirnar þínar. Við mæðgur erum ótrúlega spenntar að koma til þín.

Það er nú gott fyrir þig að eiga rólega daga og safna orku fyrir innrásina elskan mín.

Kv. Sigga

sigríður Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 19.2.2012 kl. 18:36

2 identicon

elsku vinkona. Er bara að bíða eftir ykkur. Hlakka ekkert smá til. Knúsaðu þau öll frá mér. Kv. Stína.

kristín Lilliendahl (IP-tala skráð) 24.2.2012 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband