Á undanförnum þremur dögum hefur margt breyst hér. Hitinn hækkaði skyndilega fyrir um fjórum dögum og þar með hef ég orðið meira vör við dýralífið hér. Að minnsta kosti smádýralífið . Í fyrrinótt vaknaði ég og ákvað að gang hér út á svalir. Á móti mér kom heitur vindur í stað kuldans sem verið hefur. Og ég hélt í fyrstu að ég hefði séð gráleit stór næturfiðrildi flögra í kringum mig en varð fljótlega ljóst að þetta voru leðurblökur. Já, nice. Í gærkvöldi áttaði ég mig svo á að það hafði nýtt hljóð bæst við hanagalið og hundagánna sem heyrist gjarnan kvölds og morgna. Engispretturnar eru komnar á stjá. Finnst það hljóð reyndar ósköp notalegt þegar allt er orðið kyrrt. Eitraði í fyrsta skipti undir útidyrnar í gær fyrir maurum sem líka eru farnir að sjást. Finnst þeir ekki alveg eins notalegir. Á torginu hefur líka útlitið svolítið breyst. Fram að þessu hefur fólk farið þangað til að sitja í ylnum af sólinni en nú er búið að setja upp sólhlífar svo fólk geti setið í skugganum.
Annars hefur allt gengið sinn vanagang undanfarið og ég eytt tímanum oftast nær uppi á svölum fyrripartinn og við tölvuna seinni partinn. Co og Eddie buðu mér með sér á jam-session á kaffihúsi hér niðri á strönd á dögunum sem var mjög skemmtilegt. Gamlir popparar að spila saman. Og Sandra, sú sem steig á hundaskítinn kom til mín í gærdag og sat hér á spjalli í tvo tíma. Hef gaman af þeirri gellu. Var búin að verða mér út um de-caf sem betur fer. En auðvitað þurfti hún þá að biðja um mjólk og sykur sem ég átti ekki til. Og þá lét hún svolitla vanþóknum í ljós en sagði svo dálítið mæðulega: "Ég held ég sé kannske með sykur hérna í töskunni minni". Svo dróg hún upp úr pússinu sykur í litlu veitingahúsbréfi eins og hún væri að gera mér alveg sérstakan greiða. Það hýrnaði þó svolítið yfir henni þegar ég bauð henni fulla skál af jarðarberjum.
Í gærmorgun fór ég mína venjulegu ferð á bændamarkaðinn að að kaupa ávexti og grænmeti. Get alveg tapað mér þar. Allt svo girnilegt. Fór svo í gærkveldi í tilefni af Andaluciudeginum á flamencosýningu í Casa mayor hér í þorpinu og tónleika með ekta spánskri alþýðutónlist þar sem samankomnir voru ungir og aldnir innfæddir og aðfluttir þorpsbúar. Mjög gaman.
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að lesa bloggið þitt. Mér sýnist þú bara vera orðin sólbrún og sæt. Eru skallapopparnir ekki bara svona á okkar aldri Stína mín?
En þú mannst ég er ekker hrædd við kóngulær og pöddur nema mér er ekkert og vel við stórar eðlur. Svo ég get séð um að halda smádýrunum frá.
Við erum svo spenntar mæðgurnar að koma og upplifa dýrðina með þér.
knús í bæinn
sigríður Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 28.2.2012 kl. 12:57
Sigga mín. Engar eðlur hér að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Kemur mér þó fæst á óvart hér. Ég skal díla við eðlurnar bara ef þú kemur. Hlakka svo til að fá ykkur sætu mæðgur. Er alveg búin að skipuleggja strandferð, veitingahúsferð og búðarferð fyrir utan það að slappa af hér í þessu vinalega þorpi, sitja á torginu í Tapas og á svölunum hjá mér í eftirmiðdaginn. Ertu búin að forvitnast eitthvað hjá Margréti um hvernig henni leið hérna? Væri gaman að heyra.
Elsku vinkona, Verð þér ævinlega þakklát fyrir að nenna að koma og eiga nokkra daga með mér. Ómetanlega dýrmætt. Vona bara að Laufeyju muni ekki leiðast því hér er frekar lítið um að vera.
Kristín Lillendahl (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 17:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.