Gestir og gangandi

Svölurnar eru komnar. Þær steypa sér hér yfir húsum og torgi og það er gaman að horfa á þær. Peter sá spænski sem rekur kaffi Aries, segir mér að þetta sé sérstakur vorboði hér. Og fleira minnir á vorið. Á ströndinni eru þungavinnuvélar að bera sand allan daginn í sorfna ströndina fyrir ferðamennina sem koma hér um svipað leyti og svölurnar. Páskaleyfið er framundan. Og það má merkja það á ýmsu öðru. Til dæmis hefur fjölgað fólki í húsunum í þorpinu. Og það fór sannarlega ekki framhjá systur minni sem gisti hjá mér í fimm daga. Hún svaf tæpast hér fyrstu nóttina fyrir ástarleikjum hjónanna í næsta húsi sem voru komin hingað í páskaleyfi og augljóslega búin að steingleyma hversu hljóðbært er hér milli veggja allsstaðar. Ferðaþjónustuvertíðin er greinilega hafin því búðir og veitingahús opna hér hvert af öðru þessa dagana eftir lokunina í vetur. Í dag er pálmasunnudagur, fyrsti dagur "Semana santa" eða dimbilvikunnar eins og við köllum hana. Fjölskyldurnar spænsku klæddu sig upp, fóru í kirkju og bæði börn og fullorðnir báru olífugreinar um göturnar. Undirbúningur undir helgigöngurnar er á fullu og þær verða á fimmtudagskvöld og til sunnudagskvölds. Hlakka til að taka þátt í þeim og taka myndir auðvitað.

það hefur margt skemmtilegt skeð síðan ég skrifaði síðast. Ég hef verið boðin í hvert húsið á fætur öðru, aðallega til Norðmanna og Svía sem búa hér hluta úr ári. Arne og Mette sem eru eigendur hússins sem ég leigi, búa hér í hæðunum fyrir ofan þorpið eða campo eins og þær eru kallaðar, buðu mér einu sinni til sín í matarveislu sem var ótrúlega skemmtileg og svo buðu þau okkur sys með í veislu til vina þeirra sem var ekki síður skemmtilegt. Mikið hlegið, sungið og borðaður matur af sænskum sið. Þá var mér líka boðið í hús hér rétt hjá til norskra hjóna sem vissu af mér gegnum Arne og Mette og þar með var ég komin í hóp frábærs fólks sem hefur yndi af mat, drykk, sögum og söng og hef farið með þeim margt skemmtilegt. Co og Eddie hafa verið á þvælingi í Bretlandi á nýja "gamla" hippa-wolksvagen-rúgbrauðinu sínu og voru að koma heim fyrir stuttu og nú er ég boðin í mat í bakgarðinn þeirra um miðjan dag á morgun ásamt nokkrum vinum þeirra.

Skemmtilegast var þó að fá átta frábærlega skemmtilega Íslendinga hingað í þorpið í nokkra daga og fara með þeim í dagsgöngu upp í Sierra-Nevada fjöllin fyrir ofan Granada þar sem við þræddum stíga um dali og gil milli þriggja þorpa sem liggja efst í hæðunum undir fjöllunum. Ævintýraleg ferð í góðum hópi og dagurinn allur ógleymanlegur. Í gær fór sys aftur heim eftir fimm daga dvölina hér og við áttum yndislegan systratíma saman. Þvældumst til Malaga, Nerja, Torrox Costa og Frigiliana saman og nutum hverrar mínútu. Þekkjum hvor aðra svo þægilega vel til að líða vel saman. BARA dásamlegt. Þar sem plássið mitt fyrir myndir hér á blogginu er búið, set ég myndir af þessu öllu á facebook en slóðin er:

http://www.facebook.com/media/set/?set=a.2892142191850.2114396.1509129640&type=1&l=d06aa029b1

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er allt svo skemmtilegt hjá þér. Skoðaði myndirnar á fb og þær eru frábærar. Mikið væri ég til að skipta svona um umhverfi. Á það örugglega eftir.

Kær kveðja úr snjónum og frostinu á Akureyri  Magga R

Magga Rikka (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 09:25

2 identicon

Elsku Stína

Þetta hljómar óneitanlega ótrúlega spennandi. Við mæðgur erum að verða ótrúlega spenntar. Það syttist óðum. Það verður greinilega ótrúlega margt spennandi að upplifa hjá þér Stína mín. Verð í sambandi með komutíma og fleira á næstu dögum. Knús í bæinn Sigga

sigga (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband