Næturbrölt

Já, var það ekki! Endaði á bráðadeildinni hér í morgun, orðin dálítið skelkuð yfir ástandinu. Erfitt orðið að anda og búin að vera í stanslausu hóstakasti í þrjá sólarhringa með tilheyrandi svefnleysi, lystarleysi, stoðkerfisverkjum, hausverk og ógleði. Auk þess með hitavellu og eyrnabólgu eins og litlu krílin alla undanfarna viku. Held þó að magavöðvarinir hafi styrkst svolítið í hóstaköstunum sem gerir mig ofurlítið upplitsdjarfari þegar ég hugsa um væntanlegar bikinistundir á ströndinni. Kannske lagast svolítið mittismálið? Ekkert á vísan þó að róa þar upp úr fimmtugu er mér sagt. Var greind með bronkítis og í astmakasti, fékk dásamlega sterasprautu í rassinn, "friðarpípu" í háftíma og resept upp á fjórar tegundir af lyfjum, alla þessa dásemd af hálfu "doctor handsome"  eða ("töfra-læknisins"í beinni þýðingu) sem þrátt fyrir góða menntun og færni á sviði bráðalækninga, kunni tæpast stakt orð í ensku. Ég bara skil ekki hvernig þetta er hægt í heiminum í dag.  Nóg um það. Eftir klukkutíma fór Eyjólfur heldur betur að hressast og skellti sér í sólbað og tók lífinu með ró á meðan öll súpan byrjaði að virka.

Eftir síðbúinn yndislegan tapas á torginu í kvöld fór ég heim, átti yndislegt samtal við Sebba minn en svo gerðist það sem ég reiknaði með. Sterarnir leyfa mér ekki að verða syfjuð. Og þá var ekki um annað að ræða en að drífa sig í "geðspítalagallan" sem Stebbi kallar bleiku flannels-náttbuxurnar mínar, skella yfir sig gollu, hella mér hálft rauðvínsglas (af því að liturinn fer betur við flauelsnóttina en hvítvínsliturinn) og setjast út á svalir. Algert brill! Leðurblökur á ljóshraða í kringum mann, samfelld krybbyhljóðin, óþolandi hundgáin sem aldrei þagnar og hljóðin í geitabjöllunum úti í myrkrinu. Haninn hefur tekið sér bjútíblund og safnar kröftum fyrir gólið sem gjarna byrjar um miðjar nætur og hann vill alls ekki að neinn þorpsbúinn missi af. Fullt appelsínugult risatungl og stjörnubjart. Og til að njóta alls þessa til fulls, skellti ég mér upp á terrasóið á þriðju hæð, lagðist á sólbekkinn og horfði til himins. Sömu stjörnur og sama tungl og heima. Og þarna hitti ég sjálfan Guð eins og oft áður og átti langt spjall við hann um tök og mistök dagsins, líf mitt hér í Torrox og líf mitt heima og bað hann svo lengst allra orða að vera með okkur öllum í hverju skrefi í væntanlegri Bakuferð og passa fólkið mitt heima þangað til. Þakkaði svo pent fyrir mig og mína og bað þess ef hann gæti að láta nágrannakonuna mína ekki hætta að syngja við heimilisstörfin á morgnana. Myndi ekki vilja missa af því. Ekki ennþá orðin syfjuð kl. tvö þegar ég skrifa þetta. Það er í lagi! Ég get sofið þegar ég verð gömul.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér sit ég Stína mín og les undir próf í áhættuhegðun á meðan þú chillar suður á Spáni og stundar áhættuhegðun. Hvað er það annað en áhættuhegðun að skola niður pillum frá dr.handsome með rauðvíni - með steragat á rassi - skordýrin tikkandi og leðurblökur flögrandi allt í kringum þig - já það er ekki furða að tunglið sé appelsínugult ;) En farðu vel með þig og láttu þér batna. Mig dreymdi ykkur mæðgur í fyrrinótt - hitti ykkur sigurreyfar og kátar í Kringlunni og veit það á gott.

Chao Hrabba

Hrafnhildur Inga Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 8.5.2012 kl. 00:22

2 identicon

Elsku Kristín,

Dásamlegt að lesa þennan pistil. man svo vel eftir þér í þessum gír í selinu og þá rétt náði maður að narta í hælana á þér:O) Ótrúlegt hvað þú sérð alltaf björtu hliðarnar á lífinu og því góð áminning fyrir mig og aðra að lesa bloggið þitt. Ég held að þú verðir aldrei gömul mín kæra svo hættu að láta þig dreyma um svefn hehe. Haltu áfram að njóta og leyfa okkur hinum að fylgjast með.

Knús

Anna Hulda (IP-tala skráð) 8.5.2012 kl. 08:46

3 identicon

Það eru forréttindi að eiga þig að elsku Gáfa.

Karen (IP-tala skráð) 8.5.2012 kl. 20:41

4 identicon

Elsku Kristín mín dásamlegt að fylgjast með þér hér á blogginu þínu. Þú er mér og öðrum frábær fyrirmynd í einu og öllu. Góða ferð og góða skemmtun í ævintýraferðinni sem þú ert að fara í. Hlakka til að fylgjast með ykkur öllum og afrekum ykkar.

Knús í hús

Björg

Björg Jónsd (IP-tala skráð) 17.5.2012 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband