Undanfarna daga hef ég verið að undirbúa heimför. Pakkað bókum og sent í pósti heim, pakkað niður fötum og dóti sem ég þarf ekki að nota þangað til ég fer og undirbúa hug og hjarta undir að yfirgefa þennan stað. Það er ekki svo auðvelt. Hef svo lagst í dálítið af ferðalögum til að sjá staði sem Stebbi minn myndi alls ekki nenna að þvælast með mér á hvort sem er. Greiði fyrir okkur bæði held ég ef og þegar við komum hingað aftur. Ákvað einn daginn að hoppa upp í rútu og taka mér tvo daga í að skoða Cordoba og Sevilla. Sé ekki eftir því en lenti í smá veseni í Cordóba þar sem ég hafði ekki hugsað út í að taka vegabréfið mitt með og hótelið neitaði mér þess vegna um gistinguna sem ég hafði bókað. Halló - ég er bara Íslendingur og við erum ekki vön því að þurfa að vera gera grein fyrir okkur alls staðar. Eddie, skoski nágranni minn hristir bara hausinn og segir "stop being so blonde". Eftir að hafa sent lögregluna óvart á dyrnar hjá þeim til að staðfesta að þau þekktu mig og hefðu leyfi til að fara inn í íbúðina mína og ná í vegabréfið, OG- eftir að hafa fengið utanríkisráðuneytið heima til að fara í málið, fékk ég að lúra á þessu einstaklega sæta tveggja stjörnu hóteli yfir nóttina. Mínir elskulegu skosku nágrannar voru ekki hrifnir þegar þeir komu til dyra og mættu lögreglunni (hmm, wonder why). Allavega. Cordoba æðisleg en báðar borgir bera nafn með rentu en þær eru gjarnan kallaðar "the frying pan of Andalucia". 42 gráður fyrri daginn og seinni daginn eitthvað svipað, en örlítill andvari þá bjargaði málum.
Þegar ég lít yfir þennan mánuð hef ég gert og séð margt mjög skemmtilegt. Byrja á messudegi sem var hér um miðjan mánuð en þá voru göturnar hér í þorpinu skrýddar með ´blómstrandi neríum sem maður gekk á. Blómum skreytt altari voru sett upp hér og þar og kvenfólkið klæddist flamenco-kjólum með blóm í hárinu og opnir hestvagnar og kerrur voru skreytt og keyrt með þetta prúðbúna fólk um göturnar. Þá voru karlmennirnir uppáklæddir í flamenco-kúreka-"outfitti" með hatta og læti og riðu hestum í hópum um göturnar. Svo er einhver siður í kringum þessa helgi að hengja út á svalirnar fallega blúndudúka í öllum litum. Það er ótrúlega skemmtilegt að sjá þá blakta eins og fána utan á húsunum.
Á jónsmessunni upplifði ég svo annað mjög skemmtilegt. Fór með Norðmönnum niður á strönd um kvöldið og sá hvað innfæddir og auðvitað aðfluttir íbúar líka höfðu tjaldað og kveikt lítið bál fyrir utan hjá sér í sandinum og grilluðu, spjölluðu eða dönsuðu og sungu eða bara eitthvað annað. Alvöru þjóðhátíðarstemmning meðfram allri ströndinni og fólk svaf þar yfir nóttina. Á miðnætti var magnað að sjá hvar fólk kom undan tjöldunum og gekk niður í flæðarmálið og út í sjó til að hreinsa sig. Siðurinn er að þvo fætur, hendur og andlit sem á að tákna einhverskonar andlega endurnýjun. Að horfa á eftir fólki í myrkrinu ganga í sjóinn í hópum eins og einskonar uppvakninga var næstum því svolítið "creepie". Ótrúlega skemmtilegt að taka þátt í þessu og auðvitað fór ég í sjóinn líka. Sagt er að það megi sjá eldana loga eftir allri ströndinni á Spáni þessa nótt sem er eina skiptið á árinu sem leyfilegt er að kveikja eld þar. Eftir að hafa legið á bakinu í sandinum og horft til stjarnanna í dálitla stund og borðað fisk að hætti innfæddra á ströndinni í góðum félagsskap, var farið heim en skemmtunin hélt áfram til morguns er mér sagt.
Ég fór líka á flakk upp til fjalla og heimsótti pínulítið þorp sem samanstendur af um tuttugu húsum og einu litlu veitingahúsi. Þetta þorp er kallað týnda þorpið vegna þess að Franco hrakti íbúana burt á sínum tíma því hann taldi víst að þeir væru að skjóta skjólshúsi yfir uppreisnarmenn sem hann hafði gert útlæga. Byggðin lagðist af vegna þessa en fyrir áratug eða svo tóku afkomendur íbúanna sig til og endurreistu þorpið. Dásamlega fallegur lítill staður, falinn uppi í fjöllum fyrir ofan Frigilliana, hundgömul kelling sem eldar einstaka kássu sem er fræg hér á svæðinu og svo eru hestar bundnir fyrir utan veitingahúsið eins og í villta vestrinu. Mjög gaman að koma þarna.
Anyways. Framundan er kveðjupartý hjá Co og Eddie en þau eru að fara á flakk á hippa-volkswagen rúgbrauðinu sínu un Skotland og England á miðvikudaginn kemur og um leið er ég að kveðja þau því ég fer héðan á sunnudagsmorgun eftir viku. Mun sakna þeirra sárt. Ætla að nýta þessa síðustu viku hér í að pakka og þrífa en fyrst og fremst reyna að sjá eitthvað meira hér í kring. Er þó ákveðin í að eyða síðasta deginum mínum í Nerja sem er yndislegur bær í tíu mínútna fjarlægð héðan. Búin að fara oft þangað og fæ aldrei nóg. Hef líka þvælst ótal sinnum til Malaga og á eftir að sjá svolítið þar til viðbótar. Reyndar finnst mér vænst um miðborg Malaga af þeim stöðum sem ég hef verið að þvælast á. Fráleitt að vanmeta Malaga. Yndislega falleg, aðgengileg og skemmtileg miðborg sem hefur allt; frábæra baðströnd, smábátahöfn með dásamlegum veitingastöðum, siglingamöguleikum um Malaga-flóann, fínar verslanir í frábærri göngugötu, sætar litlar þröngar hliðargötur, útikaffihús, götulistamenn, söfn og leikhús að ógleymdri dómkirkju sem er mögnuð af stærð og gerð. Borg sem allt of margir sniðganga. Vantar bara beint flug að heiman hingað.
Ég mun svo auðvitað sitja á torginu á sunnudagskvöld í góðra vina hópi og láta eins og ég sé að horfa á fótboltann voða spennt. Finnst nú meira gaman að horfa á fólk horfa á fótboltann, svo ekki sé minnst á sjálfa leikmennina . Spennan nú þegar sjáanleg hér. ´Spænski fáninn blaktir utan á nánast hverju húsi. Ég ætla ekki að missa af þessu. Ætla að blogga aftur áður en ég fer endanlega. Adios amigos.
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.